Untitled Document
 :: Forsíða
 :: Fréttir
 :: Greinar
 :: Spjallið
 :: Myndasafn
 :: Ljósmyndakeppni
 :: Leikir
 :: Loftfaraskrá
 :: Auglýsingar
 :: Tenglasafn
 
 :: AIP-Flugmálahandbókin
 :: Notam
 :: Flugveður
 :: Flugvellir

Vefurinn Flugnet er hugsaður sem afþreyingar- og upplýsingarvefur fyrir flugmenn og áhugamenn um flug.

Vefurinn opnaði 12. janúar 2004.

Umsjónarmaður:
Sigurbjörn Ragnarsson

TOPP 10 VINSÆLUSTU TENGLARNIR!

Fara í tenglasafn >>
 

 




 

15.11.2011

Breska lágfargjaldaflugfélagið easyJet, sem áformar flug til Íslands næsta sumar, jók hagnað sinn um 30% á síðasta uppgjörsári, sem lauk í september sl., þrátt fyrir hækkandi eldsneytiskostnað og truflanir vegna öskunnar frá Eyjafjallajökulsgosinu. Hagnaður félagsins fyrir skatta nam 248 milljónum punda, eða um 45 milljörðum króna.

Samkvæmt frásögn The Telegraph fjölgaði farþegum um tæp 12% og var nærri 55 milljónir farþega. Tekjur rekstrarársins námu 3,5 milljörðum punda, eða nærri 650 milljörðum króna á núvirði. Tekjur af hverju flugsæti námu 55,3 pundum.

Flugfélagið nær þetta góðum hagnaði þrátt fyrir 34 milljóna punda tekjutap vegna öskunnar frá gosinu í Eyjafjallajökli í fyrra. Eldsneytiskostnaður jókst um 100 milljónir punda og reiknar félagið með enn meiri aukningu á yfirstandandi rekstrarári, eða um 220 milljónir punda.

EasyJet ætlar ekki að auka flugframboðið fyrstu sex mánuðum yfirstandandi rekstrarárs, sökum efnahagsvanda evrusvæðisins, en áformar aukningu um 4% á seinni hluta ársins...

15.11.2011
Hagnaður breska lággjaldaflugfélagsins easyJet jókst um 86% á síðasta rekstrarári sem lauk þann 30. september. Mun félagið greiða út arð til hluthafa og er það í fyrsta skipti í 11 ára sögu félagsins á hlutabréfamarkaði.

Hagnaður easyJet 225 milljónum punda, 41,7 milljörðum króna á síðasta rekstrarári samanborið við 121 milljón punda árið á undan.

Tekjur easyJet jukust um 16,1% og námu 3,45 milljörðum punda og farþegum fjölgaði um 11,8% en alls ferðust 54,5 milljónir farþega með félaginu á nýliðnu rekstrarári...

15.11.2011
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Dohop hefur gert samning við SEA á Ítalíu, rekstraraðila Malpensa-flugvallarins í Mílanó, um þróun og rekstur sérsniðinnar flugleitar fyrir vef flugvallarins http://www.flyviamilano.eu/. Tæplega 19 milljón farþegar fóru um Malpensa-flugvöll á síðasta ári, en til samanburðar fóru um 1,8 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll á sama tímabili.

Flugleitin á vef Malpensa er sérsniðin þannig að hún finnur ferðir með millilendingu í Mílanó, sem gerir flugvöllinn að nokkurs konar gátt til og frá Evrópu. Jafnframt er Malpensa fyrsta og stærsta bækistöð easyJet utan Bretlandseyja sem opnar afar áhugaverða tengimöguleika við fjölmörg önnur flugfélög á lágu verði.

Dohop semur um flugleit við næststærsta flugvöll Ítalíu
„Við erum afar hrifnir af vörunni,” segir Giulio De Metrio, framkvæmdastjóri SEA. „Samvinna Dohop og ViaMilano hjálpar ferðamönnum um allan heim að finna flugtengingar í gegnum Malpensa og við getum nú boðið upp á hraðari flugleit og trausta þjónustu við alla farþega.” ...


  • Fara á spjallborð >>


    Flugmynda Leitarvél
    Stærsta Flugmyndasafnið á Netinu
    Flugvélategund... [ Hjálp ]
    Flugfélag... [ Hjálp ]
    Lönd / Flugvellir... [ Hjálp ]
    Flokkur... [ Hjálp ]
    Upphlaðið... [Hjálp]
    Stikkorð... [ Hjálp ]
    Með... [ Hjálp ]
    Raða Eftir...
    Takmörk...
    Sýna...


    Sýna einungis myndir sem eru til sölu.

    Sýna myndir. [ Hjálp ]

     


     
     
     
     



     


     
       

     





    © Sigurbjörn Ragnarsson - allur réttur áskilinn

    Hönnun vefs: Róbert Daníel Jónsson